Persónuverndarstefna
Prufuútgáfa. Síðast uppfært 17. nóvember 2026.
Ábyrgðaraðili
Sobrano, félag til almannaheilla, kt. 650826-1670. Samband: sobranoiceland@gmail.com.
Hvað við geymum
Netfang og lykilorð (hjá Firebase Authentication), nafn eða gælunafn, stutta lýsingu, valfrjálsa prófílmynd, upphafsdag bata, skapskráningar, færslur, athugasemdir, skilaboð, hverjum þú fylgir eða hefur lokað á, og hvort þú hefur boðið þig fram sem buddy.
Nafnleynd
Nafnlaus færsla sýnir ekki höfund. Tengingin við aðganginn þinn er geymd aðskilin og er aðeins sýnileg þér. Stjórnendur Sobrano geta skoðað efni sem er tilkynnt.
Skilaboð
Skilaboð milli notenda eru ekki dulkóðuð frá enda til enda.
Hvar gögnin eru geymd
Gögnin eru geymd hjá Google Firebase á Evrópusvæðinu (Belgíu). Við seljum ekki gögn, deilum þeim ekki með þriðju aðilum í markaðslegum tilgangi og sýnum engar auglýsingar.
Réttindi þín
Þú getur eytt aðganginum og öllum gögnum þínum hvenær sem er í stillingum appsins. Þú getur einnig beðið um upplýsingar eða eyðingu með því að senda póst á sobranoiceland@gmail.com.
Börn og ungmenni
Appið er opið öllum. Við biðjum notendur um að gefa ekki upp viðkvæmar persónuupplýsingar um sig eða aðra í opnum færslum.
Neyð
Appið kemur ekki í stað meðferðar eða ráðgjafar. Ef þú eða einhver annar er í hættu, hringdu í 112 eða Hjálparsímann 1717.