Félag til almannaheilla

Sobrano

Nafnlaust stuðningssamfélag fyrir fólk sem glímir við spilafíkn.

Ég er að byggja app sem gerir fyrsta skrefið út úr fíkninni auðveldara. Með stuðningi þínum getum við gert Sobrano að veruleika.

Mín saga

Ég heiti Davíð Már og ég er spilafíkill.

Það sem ekki allir átta sig á er hvað það eru ótrúlega margir ungir strákar eða stelpur sem eru að díla við spilavandamál. Ef ég tek sjálfan mig sem dæmi, þá held ég að enginn hafi áttað sig á því hvað ég var djúpt sokkinn í þessa fíkn. Ekki einu sinni ég sjálfur.

Ég byrjaði að spila á öðru ári í menntaskóla. Það tók mig ekki nema svona tvær vikur að vinna fyrsta stóra vinninginn minn, eina milljón. Ég man svo vel eftir því. Á öðru og þriðja ári í Tækniskólanum gerði ég varla neitt annað en að spila í tímunum og þegar ég útskrifaðist hélt ég áfram, og setti bara meira og meira undir, þangað til ég áttaði mig á því að ég var alltaf búinn með mánaðarlaunin mín á þriðja eða fjórða degi mánaðarins. Þá byrjuðu skuldirnar. Ég tók sífellt yfirdrátt og var kominn í hálfgert rugl.

Í janúar 2025 lést pabbi minn úr krabbameini. Rétt áður en hann kvaddi okkur fór ég á minn fyrsta Gamblers Anonymous fund, og ég get varla lýst því hvað ég var stressaður. Það sem hjálpaði mér mest í gegnum allt þetta var að mamma mín kom með mér. Hún fann fyrir mig spilaráðgjafa, hana Ölmu, og fór með mér á fyrsta fundinn.

Það sem ég hugsaði þá var bara guð minn almáttugur hvað þetta hlýtur að vera erfitt fyrir unga stráka og stelpur sem eru í sömu sporum og ég en alveg ein í þessu, sem þora ekki að stíga fyrstu skrefin og halda bara áfram að spila og sökkva dýpra og dýpra.

Þess vegna kom ég með hugmyndina að Sobrano.

Sobrano er snjallforrit sem hjálpar spilafíklum, ungum sem öldnum, að hætta að spila. Þú getur verið nafnlaus og póstað þínum eigin færslum, talað um batann þinn eða bara tjáð þig um hvernig þér líður í raun og veru. Þetta er svipað og nafnlausar færslur á samfélagsmiðlum, en byggt utan um bata. Þú getur fylgst með þínum eigin árangri, það eru öndunaræfingar, reynslusögur frá öðrum spilafíklum, og neyðarnúmer þegar mest á reynir. Þetta er í raun samfélagsmiðill fyrir spilafíkla, þar sem þú getur póstað opinberlega eða nafnlaust.

Ég vil gera þetta fyrsta skref auðveldara og aðgengilegra fyrir fólk sem er að díla við þessa hræðilegu fíkn. Ég vil standa með ungu fólki og hjálpa því.

Því enginn á að þurfa að vera einn í þessu.

— Davíð Már

Um Sobrano

Appið sem við erum að byggja er samfélagsmiðill fyrir bata — öruggt rými þar sem enginn þarf að vera einn í sinni baráttu við spilafíkn.

Nafnlaust samfélag

Deildu því sem þú ert að ganga í gegnum og fáðu stuðning frá öðrum sem skilja — algjörlega nafnlaust.

Talning spilalausra daga

Fylgstu með eigin bata og haltu utan um áfangana þína, dag fyrir dag.

Öndunaræfingar

Þegar löngunin kemur — einfaldar æfingar sem hjálpa þér að anda með þér í gegnum erfiðu augnablikin.

Reynslusögur

Lestu sögur frá öðrum sem hafa gengið sömu leið — þú ert ekki einn í þessu.

Neyðarnúmer og hjálparlínur

Aðgangur að hjálparlínum og neyðarnúmerum þegar mest á reynir, alltaf innan seilingar.

Styrkja verkefnið

Öll framlög fara beint í að byggja og reka Sobrano — svo appið geti orðið að veruleika og hjálpað sem flestum.

Reikningur
0133-26-023229
Kennitala
650826-1670
Nafn
Sobrano

Öll framlög, stór sem smá, skipta máli.

Hafa samband

Spurningar, hugmyndir eða vilt taka þátt? Endilega sendu línu.

sobranoiceland@gmail.com